|
Hvíti bærinn er veitinga og gistiheimili þar sem boðið er uppá svefnpokagistingu eða uppbúið rúm. Einnig er í boði morgunmatur, hádegismatseðill alla virka daga, kvöldmatseðill og ýmsar tegundir af bakkelsi. Húsið hefur að bjóða 18 pláss í gistingu, þar eru sjö herbergi ýmist með tveim eða fjórum rúmum.
Hvíti bærinn stendur við þjóðveg nr. 1 og er umlukið 18 holu golfvelli sem rekinn er af Golfklúbb Borgarness. Kjörið tækifæri fyrir golfara að panta sér gistingu í Hvíta bænum og njóta þess að spila golf í fallegu umhverfi.
Sundlaug er í Borgarnesi og öll þjónusta, þar er margt að sækja og skoða bæði menningarlegt og fræðandi.
Sjá má allar upplýsingar um gistingu og mat hér á síðunni.
ATH hér er hægt að skrá sig á póstlista hjá okkur ATH
Láttu okkur sjá um veisluna fyrir þig, allt frá smáréttum til stórveislna.
Bendum hópum, félagasamtökum, kórum, fjölskyldum og vinahópum á að sniðugt er að nýta sér langa helgi í Hvíta bænum, Hamri og eiga þar saman góða stund með góðum mat og í fallegu umhverfi.
Minnum einnig á hina vinsælu dekurdaga sem við setjum upp eftir ykkar hugmyndum s.s fótanudd, andlitsmeðferð, nudd, höfuðbeina-og spjaldhr, skoðunarferðir í gallerí og víðar, magadans, þæfing, stjörnuspeki, geitur og rósir, reiðtúr o.fl. |